Home 🎬 Bollywood 🎵 Pakistani 🎤 English Pop

Mansöngur

👤 Sigur Rós feat. Steindór Andersen 🎼 Rímur - EP ⏱️ 6:19
🎵 506 characters
⏱️ 6:19 duration
🆔 ID: 2340913

📜 Lyrics

Kem ég enn af köldum heiðum
Kæra fljóð, til þín.
Frerasvip á fannabreiðum
Fengu stefin mín

Ég hef reikað eftir ísum
Allan veg til þín
Til að kveikja von með vísum.
Var nú þörfin brýn

Hríðarvöldin vetrarríku
Villtan tróðu dans;
Von að köld í veðri slíku
Væru ljóðin manns

Blik frá rauðum ástareldi
Eftir nauðir mér
Sumarauðugt sólarveldi
Síðan bauð hjá þér

Ástin meðan öllu réði
Okkar geði hjá
Allt var kveðið eins og gleði
Entist héðan frá

⭐ Rate These Lyrics

Average: 0.0/5 • 0 ratings