Home 🎬 Bollywood 🎵 Pakistani 🎤 English Pop

Stendur æva

👤 Sigur Rós with Steindór Andersen, Hilmar Örn Hilmarsson and María Huld Markan Sigfúsdóttir 🎼 Odin's Raven Magic ⏱️ 9:47
🎵 855 characters
⏱️ 9:47 duration
🆔 ID: 2401984

📜 Lyrics

Dugir með dvergum
Dvína, heimar
Niður að Ginnungs
Niði sökkva
Oft Alsviður
Ofan fellir
Oft of föllnum
Aftur safnar

Stendur æva
Strind né röðull
Lofti með lævi
Linnir ei straumi
Mærum dylst
Í Mímis brunni
Vissa vera
Vitið enn, eða hvað?

Dvelur í dölum
Dís forvitin
Yggdrasils frá
Aski hnigin
Álfa ættar
Iðunni hétu
Ívalds eldri
Yngsta barna.

Eirði illa
Ofankomu
Hárbaðms undir
Haldin meiði
Kunni sízt
Að kundar Nörva
Vön að værri
Vistum heima.

Sjá sigtívar
Syrgja Naumu
Viggjar að véum
Vargsbelg seldu
Lét í færast
Lyndi breytti
Lék að lævísi
Litum skipti

Valdi Viðrir
Vörð Bifrastar
Gjallar sunnu
Gátt að frétta
Heims hvívetna
Hvert er vissi
Bragi og Loftur
Báru kviðu

Galdur gólu
Göndum riðu
Rögnir og Reginn
Að ranni heimis
Hlustar Óðinn
Hliðskjálfu í
Leit braut vera
Langa vegu

⭐ Rate These Lyrics

Average: 0.0/5 • 0 ratings