Home 🎬 Bollywood 🎵 Pakistani 🎤 English Pop

Sá sem slítur vængi flugunnar hefur náð hugljómun

👤 Carpe Noctem 🎼 Vitrun ⏱️ 11:40
🎵 973 characters
⏱️ 11:40 duration
🆔 ID: 4409944

📜 Lyrics

Það er turn
Sem er fjall
Sem er borg
Sem geymir í hvelfingum sínum
Lifandi eldhjartað

"Sá sem slítur vængi flugunnar
Hefur náð hugljómun"
Er ritað yfir borgarhliðinu
Blessun þeirra ráfandi sálna
Sem villast hingað
í vöku jafnt sem draumi

Þau sem hlóðu bálkesti
á tungllausum nóttum,
Böðuðu andlit sín í öskunni
Breyttu martröðum í vín
Og lögðust hjá sótsvörtum beinum
Hírast í niðurníddum hreysum
Og safna hugrekki

Þau stara út um brotna glugga
á þau sem veigra sér
Inn í völundarhúsið

Pílagrímar halda út
Malbikuð öngstræti rísa mót þeim
í fögnuði
Og vinda upp á sig í ný,
Afmynduð form
Borgin opnar ryðtennt gin og öskrar
þegar himininn opnast
Svo aftur megi greina
Sanna ásjónu tunglsins

Í miðju völundarhússins
Mega hinir verðugu og fjölkunnugu
Bera eldhjartað augum
Og plægja akra sálu sinnar
Fyrir logandi fræinu
Sem festir rætur í óverðugri fold
Og umbreytir myrkri í líf

⭐ Rate These Lyrics

Average: 0.0/5 • 0 ratings